land.is
Landgræðslan

Endurheimt votlendis

Heim » Landnýting » Endurheimt votlendis

Votlendi

Votlendi geyma verulegan hluta kolefnisforða jarðar. Þau eru mikilvæg búsvæði plantna, fugla, fiska og smádýra, bæta vatnsbúskap jarðar og geta jafnað vatnsrennsli og þannig minnkað hættu á flóðum, sveiflum í vatnsrennsli og jarðvegsrofi. Þvi er mikilvægt að vernda votlendi og endurheimta röskuð votlendi sem ekki er verið að nýta.

Á mörgum svæðum hefur dregið úr nýtingu framræsts lands. Þessum svæðum er kjörið að koma aftur í sitt náttúrulega horf. Með endurheimt votlendis er leitast við að koma vatnsbúskap svæðis sem næst því sem áður var. Í kjölfarið má svo gera ráð fyrir að lífríki færist til fyrra horfs og að jöfnuður gróðurhúsalofttegunda verði jákvæður. Endurheimt votlendis getur aukið útivistargildi svæða, t.d. aukið möguleika til fuglaskoðunar og bætt skilyrði til veiða. Mjög misjafnt er þó hversu vel svæði henta til endurheimtar. Í sumum tilvikum er torsótt að koma vatnsbúskap í fyrra horf.

 

land.is
Landgræðslan

Auglýsir eftir samstarfi við landeigendur

Endurheimt votlendis

PDF Landgræðslan  Endurheimt votlendis. Ársskýrsla 2022

PDF Landgræðslan  Endurheimt votlendis. Ársskýrsla 2021

PDF Landgræðslan  Endurheimt votlendis. Ársskýrsla 2019

PDF Landgræðslan  Endurheimt votlendis. Ársskýrsla 2018

PDF Landgræðslan  Endurheimt votlendis. Ársskýrsla 2017

PDF Landgræðslan  Endurheimt votlendis. Ársskýrsla 2016

PDF Landgræðslan  Aðgerðaráætlun á vegum umhverfisráðuneytisins

PDF Landgræðslan  Samningur um endurheimt votlendis

PDF Landgræðslan  Leiðbeiningarrit fyrir framkvæmdaraðila

PDF Landgræðslan Áskoranir og tækifæri í endurheimt votlendis á Íslandi

votlendissjodur  Ýmiss fróðleikur um votlendi og endurheimt þess

Ágústa Helgadóttir

Verkefnisstjóri endurheimtar votlendis (EHV).

Iðunn Hauksdóttir (í leyfi)

Héraðsfulltrúi á Vesturlandi og Vestfjörðum og verkefnisstjóri endurheimtar votlendis (EHV) Framfylgir stefnu Landgræðslunnar í landgræðslu og gróður- og jarðvegsvernd. Gerir áætlanir og hefur umsjón og eftirlit með landgræðsluverkefnum. Aflar upplýsinga, vaktar ástandi gróðurs og jarðvegs og fylgist með að lögum um landgræðslu sé framfylgt. Skráir landgræðsluaðgerðir og mat á árangri. Veitir fræðslu, ráðgjöf og miðlar upplýsingum um verkefni héraðssetursins.

Sunna Áskelsdóttir

Sér um rannsókna- og þróunarstarf tengt votlendi og endurheimt þess, á vegum Landgræðslunnar og um vöktun votlendisvistkerfa með áherslu á losun/bindingu gróðurhúsalofttegunda. Hefur umsjón með þróun aðferða til að meta árangur af endurheimt votlendis. Vinnur að þróun vöktunarverkefnis til að afla nauðsynlegra gagna um losun/bindingu votlendis fyrir loftlagsbókhald Íslands og hef umsjón með framkvæmd verkefnisins.