land.is
Sveitarfélög á suðurlandi

Landgræðslan

Heim » Viðfangsefni » Hringrásir og nýsköpun » Ráðgjöf um lífrænar auðlindir » Sveitarfélög á suðurlandi

LANDGRÆÐSLAN

Landgræðslan heyrir undir umhverfis- og auðlindaráðuneytið og vinnur samkvæmt lögum um landgræðslu að því að vernda, endurheimta og bæta þær auðlindir þjóðarinnar sem fólgnar eru í gróðri og jarðvegi og tryggja sjálfbæra nýtingu lands. Ennfremur að fræðslu, leiðbeiningum, rannsóknum, þróunarstarfi o.fl. á þessu sviði. Landgræðslan hét áður Sandgræðsla Íslands og var stofnuð árið 1907.

Lög um landgræðslu 155/2018 voru samþykkt á Alþingi í desember 2018. Markmið laganna er að vernda, endurheimta og bæta þær auðlindir þjóðarinnar sem fólgnar eru í gróðri og jarðvegi og tryggja sjálfbæra nýtingu lands. Landgræðslan skal og hvetja til almennrar þátttöku í landgræðslu og vinna að þróun starfsins, m.a. með rannsóknum. Stofnunin skal afla upplýsinga um landnýtingu og ástand lands, hafa yfirsýn yfir og eftirlit með framkvæmdum í landgræðslu á landsvísu. Þá skal Landgræðslan hafa umsjón með landgræðslusvæðum. Í ljósi laganna skal vinna landgræðsluáætlun á landsvísu, sem og svæðisáætlanir um landgræðslu. Þá skal stofnunin vinna að vörnum gegn landbroti