Warning: Attempt to read property "post_content" on null in /var/www/virtual/land.is/htdocs/wp-content/themes/Divi/includes/builder/feature/dynamic-assets/class-dynamic-assets.php on line 2078
Sigurvegarar Evrópukeppni Cassini-hakkaþonsins - Landgræðslan
16. nóvember, 2021

Sigurvegarar Evrópukeppni Cassini-hakkaþonsins

Sigurvegarar Evrópukeppni Cassini-hakkaþonsins.
Tóku áskorun Landgræðslunnar um leiðir til að finna og meta landsvæði í hnignun

Alþjóðlegt teymi sex keppenda sem keppti fyrir hönd Íslands í Cassini-hakkaþoninu sem haldið er á vegum Evrópusambandsins vann fyrstu verðlaun fyrir hugmynd sína á því hvernig nota mætti gervitunglamyndir til að meta landrof og landhnignun.

Hakkaþon sem einnig hafa verið nefnd lausnakeppnir eru nýsköpunarkeppnir þar sem þverfagleg lið vinna saman í afmarkaðan tíma við að finna lausnir á raunverulegum áskorunum sem lagðar eru fram. Liðunum býðst gjarnan ráðgjöf frá sérhæfðum leiðbeinendum sem hjálpa þeim í gegnum ferlið, en fyrirtækið Startup Iceland sá um að styðja við íslenska liðið og sá einnig um framkvæmd keppninnar á Íslandi.

Cassini hakkaþonið er nefnt eftir fransk-ítalska stjörnufræðingnum Giovanni Cassini sem átti merkar uppgötvanir á sviði stjörnufræði á 17. öld og uppgötvaði m.a. fjögur fylgitungla Satúrnusar. Tilgangur Cassini-hakkaþonsins er að nýta þá möguleika sem evrópsk geimtækni býður upp á til að takast á við umhverfisáskoranir samtímans. Þrjú megin viðfangsefni voru upplegg keppninnar að þessu sinni; Öryggi á sjó, Líf á landi og Verndun náttúrulegs umhverfis. Áskorunin sem Landgræðslan lagði fram féll undir flokkinn Líf á landi og var skrifuð af þeim Jóhanni Þórssyni, Kristínu Svavarsdóttur og Bryndísi Marteinsdóttur.

Cassini hakkaþonið 2021

Cassini hakkaþonið var haldið samtímis í 10 löndum í nóvember.

Vöktu í 40 tíma

Hakkaþonið var annað i röðinni af sex sem eru haldin á vegum framkvæmdastjórnar ESB. Að lokinni undankeppni áttu vinningslið þeirra tíu landa sem kepptu í lokakeppninni að skila sínum hugmyndum og útfærslum þann 7. nóvember sl. Alls kepptu 70 sprotafyrirtæki og 300 einstaklingar í 10 löndum á meðan keppninni stóð. Lokaspretturinn tók á, sumir keppenda sigurteymisins þurftu að leggja á sig 40 tíma samfellda vöku til að ná settum skilafresti.

Verðlaunin sem teymið hreppti eru um 5.000 evrur auk 100 klukkustunda ráðgjöf til þróunar verkefnisins frá umhverfis- og tæknisérfræðingum framkvæmdastjórnarinnar.

Vinningsliðið sem keppti fyrir hönd Íslands samanstendur af líffræðingi, sérfræðingi í landfræðilegum upplýsingakerfum, frumkvöðli og þremur forriturum. Auk Íslands koma meðlimir frá Bandaríkjunum, Frakklandi, Sviss, Svíþjóð og Rússlandi.

Framför í rannsóknum og mælingum

Úrlausn liðsins snýst um að nýta landfræðileg gögn og myndir sem koma frá gervitunglum Evrópsku geimvísindastofnunarinnar til að greina frumstig landeyðingar og hnignunar á heimskautaslóðum. Einnig að geta metið breytingar á ástandi lands. Sú nálgun gefur möguleika á að nálgast upplýsingar um landeyðingu og uppblástur sem hingað til hafa að mestu verið aðgengilegar í gegnum hefðbundnar rannsóknir og mælingar á jörðu niðri. Með því að nýta gervitunglamyndir og gögn á þennan hátt getur sparast mikill tími og kostnaður og matsferlið orðið skilvirkara.

Fyrirtækið Startup Iceland sem hefur sérhæft sig í að styðja við sprotafyrirtæki á alþjóðavettvangi mun í framhaldinu vinna með liðinu við að þróa vinningshugmyndina og uppbyggingu fyrirtækis í kringum hana.

Vinningshugmyndina má sjá á þessari vefsíðu sem ennþá er í þróun. Einnig má sjá hér úrlausnir liðanna og þegar úrslit voru kynnt 15. nóvember sl. Tilkynningu sigurvegara og mikinn fögnuð vinningsliðsins má sjá á 01:57:50.

Sigurlið Cassini hakkaþonsins 2021

Sigurlið Cassini-hakkaþonsins 2021. F.v. Roman Pechenkin, Christina Rodriguez, Marco Pizzolato, Cécile Chauvat og Filomena Cerniute. Á myndina vantar Söndru Rós Hrefnu Jónsdóttur.

Starfsstöðvar

Starfsfólk

Um okkur

Rafrænir reikningar

Skýrslur

Leiðbeiningar

Landupplýsingar

Landbótasjóður

Gæðastýring í sauðsfjárrækt

Bændur græða landið

Varnir gegn landbroti

Endurheimt votlendis

Hagagæði

GróLind

Lagaumhverfi

Auglýsingar

Aðalskrifstofa | Gunnarsholti | 851 Hella | Sími 488-3000 | Netfang land@land.is | Rafrænir reikningar | Kt: 710169-3659

Efnisorð:

Þú gætir haft áhuga á….

Jafnrétti er ákvörðun

Jafnrétti er ákvörðun

Landgræðslan tók á móti Jafnvægisvoginni, viðurkenningu FKA við hátíðlega athöfn fimmtudaginn 12. október

Máttur til mýranna!

Máttur til mýranna!

Afar mikilvæg alhiða votlendisráðstefna var haldin í Antwerpen 19. – 21. september síðast liðinn. Lögð var fram sameiginleg yfirlýsing um mikilvægi votlendis hvað varðar ýmsar þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir sem Landgræðslan hefur lagt stuðning við.