2. febrúar, 2023

Möguleikar á endurheimt búsvæða fiska og fugla á Mýrum og nágrenni

Á dögunum hlaut Fuglavernd í samstarfi við Landgræðsluna, Hafrannsóknastofnun og Konunglega fuglaverndarfélag Bretlands (RSBP) styrk til að kanna möguleika á endurheimt búsvæða í lækjum, vötnum og votlendi fyrir fiska, fugla og aðrar lífverur. Náttúrufræðistofnun Íslands og Landbúnaðarháskóli Íslands munu einnig koma að verkefninu.

Verkefnið er framhald verkefnis þar sem gerð var úttekt á vatnasvæði Kálfalækjar á Mýrum. Þar kom í ljós að framræsla votlendis hafði eyðilagt farleiðir fiska upp læki á svæðinu, auk þess að hafa slæm áhrif á hrygningar- og uppeldissvæði þeirra. Aftur á móti fundust hrygningarsvæði urriða í einu tilviki í skurði, en slíkt þarf að hafa í huga ef endurheimt verður á svæðinu.

Nú er hugmyndin að stækka rannsóknarsvæðið svo það nái yfir Mýrar, Hnappadal og alla leið að ósi Straumfjarðarár fyrir neðan Snæfellsnesveg. Svæðið er tilnefnt til Náttúruminjaskrár af Náttúrufræðistofnun vegna búsvæða vað- og vatnafugla. Ásamt aðliggjandi fjörum og grunnsævi er það einnig skilgreint sem alþjóðlega mikilvægt fuglasvæði af BirdLife International. Vötn og lækir á svæðinu eru líklega mikilvæg búsvæði silungs og ála, en ál hefur fækkað mikið í Evrópu og er nú talinn vera í útrýmingarhættu.

Í verkefninu verða lækir og vatnasvæði sem hafa orðið fyrir áhrifum framræslu kortlagðir með tilliti til búsvæða fiska, sérstaklega urriða og áls. Hindranir verða skrásettar og metið verður hvaða áhrif endurheimt hefur á aðrar lífverur eins og fugla og gróðurfar. Mannfólkið er ekki heldur undanskilið en mikilvægt er að huga að landnýtingu og afstöðu landeigenda til endurheimtar. En ef endurheimt verður á svæðinu er mögulegt að aukin nýting fiskistofna verði í framtíðinni.

Styrkurinn var veittur af Open Rivers Programme sem hefur það að markmiði að endurheimta líffræðilegan fjölbreytileika og náttúrulega rennslishætti vatnsfalla í Evrópu. Þá aðallega með því að fjarlægja manngerðar hindranir eins og stíflur úr ám og lækjum. Áður hafði verkefnið hlotið styrki frá Orkurannsóknasjóði Landsvirkjunnar, Nýsköpunarsjóði námsmanna og Auðlind náttúrusjóði.

Nú er einungis verið að kanna möguleika á endurheimt, en ef gott samstarf og valkostir eru fyrir hendi er mögulegt að vinna verkefnið yfir á framkvæmdastig í samvinnu við landeigendur.

Kálfalækjavatnasvið

Þú gætir haft áhuga á….

Jafnrétti er ákvörðun

Jafnrétti er ákvörðun

Landgræðslan tók á móti Jafnvægisvoginni, viðurkenningu FKA við hátíðlega athöfn fimmtudaginn 12. október

Máttur til mýranna!

Máttur til mýranna!

Afar mikilvæg alhiða votlendisráðstefna var haldin í Antwerpen 19. – 21. september síðast liðinn. Lögð var fram sameiginleg yfirlýsing um mikilvægi votlendis hvað varðar ýmsar þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir sem Landgræðslan hefur lagt stuðning við.