Þann 23. mars 2023 munu Rótarýklúbbur Rangæinga og Landgræðslan efna til málþingsins í Gunnarsholti. Málþingið hefst kl 13 og lýkur kl 17. Fylgist með í beinu streymi frá fundinum.
Fjallað verður um hvernig unnt er að draga úr umhverfisáhrifum sunnlensks landbúnaðar, sjálfbærni í landbúnaði, bætta nýtingu lífræns úrgangs, eflingu innlendrar fóðuröflunar og hvernig landbúnaðurinn getur tekist á við nýjar áskoranir á tímum loftslagsbreytinga. Þingið er öllum opið.
Fundarstjórar verða Drífa Hjartardóttir og Sveinn Runólfsson
- 13:00 Forseti Rótarýklúbbs Rangæinga setur málþingið, Sigurlín Sveinbjarnardóttir
- 13:10 Ávarp – Matvælaráðherra, Svandís Svavarsdóttir
- 13:25 Sjálfbær landnýting, Björn H. Barkarson
- 13:45 Bændasamtökin – Landbúnaður á tímum loftlagsbreytinga, Gunnar Þorgeirsson
- 14:00 Ráðgjafaþjónustan, Borgar Páll Bragason
- 14:15 Syndaflausnir í kolefnisbúskap, Stefán Gíslason
- 14:30 Kolefnið fýkur burt, Ólafur Arnalds
- 14:45 Endurheimt landgæða, Bryndís Marteinsdóttir
- 15:00 Kaffihlé
- 15:30 Nýjar áskoranir og tækifæri í átt að sjálfbærni, Ólafur Eggertsson
- 15:45 Aukin sjálfbærni í fóðuröflun, Grétar Hrafn Harðarson
- 16:00 Lífræn efni í landbúnaði, Magnús H. Jóhannsson
- 16:15 Kornræktin – framtíðarmöguleikar, Helgi Eyleifur Þorvaldsson
- 16:30 Garðyrkjan – framtíðarmöguleikar, Guðríður Helgadóttir
- 16:45 Umræður
- 17:00 Fundarslit, Árni Bragason