4. janúar, 2021

Auglýsing um styrki fyrir Landbótasjóð 2021

Auglýsing um styrki fyrir árið 2021

Árlega úthlutar Landbótarsjóður Landgræðslunnar styrkjum til að styðja félagasamtök, bændur, sveitarfélög og aðra umráðahafa lands við verndun og endurheimt gróðurs og jarðvegs. Áratugurinn 2021 til 2030 er tileinkaður endurheimt vistkerfa og er fólk eindregið hvatt til þátttöku.
Landgræðslan veitir ráðgjöf við framkvæmd þeirra verkefna sem sjóðurinn styrkir og hefur jafnframt eftirlit með framvindu þeirra og metur árangur.

Opið verður fyrir umsóknir á tímabilinu frá 11. janúar til og með 25. janúar.

Umsóknareyðublöð og reglur sjóðsins eru á heimasíðu Landgræðslunnar www.land.is.

Einnig er hægt að nálgast þessi gögn og fá nánari upplýsingar og ráðgjöf á héraðssetrum stofnunarinnar um land allt.

Ákvörðun um styrkveitingar byggir á markmiðum laga nr. 155/2018 um landgræðslu.

Starfsstöðvar

Starfsfólk

Um okkur

Rafrænir reikningar

Skýrslur

Leiðbeiningar

Landupplýsingar

Landbótasjóður

Gæðastýring í sauðsfjárrækt

Bændur græða landið

Varnir gegn landbroti

Endurheimt votlendis

Hagagæði

GróLind

Lagaumhverfi

Auglýsingar

Aðalskrifstofa | Gunnarsholti | 851 Hella | Sími 488-3000 | Netfang land@land.is | Rafrænir reikningar | Kt: 710169-3659

Efnisorð:

Þú gætir haft áhuga á….

Jafnrétti er ákvörðun

Jafnrétti er ákvörðun

Landgræðslan tók á móti Jafnvægisvoginni, viðurkenningu FKA við hátíðlega athöfn fimmtudaginn 12. október

Máttur til mýranna!

Máttur til mýranna!

Afar mikilvæg alhiða votlendisráðstefna var haldin í Antwerpen 19. – 21. september síðast liðinn. Lögð var fram sameiginleg yfirlýsing um mikilvægi votlendis hvað varðar ýmsar þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir sem Landgræðslan hefur lagt stuðning við.