14. júní, 2019

Alþjóðlegur dagur gegn landeyðingu og netnámskeið um þróun sjálfbærra viðskiptamódela fyrir endurheimt landgæða

Sautjándi júní er alþjóðlegur dagur gegn landeyðingu en á þessum degi árið 1994 samþykktu Sameinuðu þjóðirnar sáttmála um varnir gegn myndun eyðimarka í heiminum eða eyðimerkursamninginn (United Nations Convention to Combat Desertification, UNCCD). Landgræðsluskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna á rætur í eyðimerkursamningi Sþ og tengist einnig loftslagssamningnum (UNFCCC) og samningnum um líffræðilega fjölbreytni (CBD). Meginmarkmið Landgræðsluskólans er að aðstoða þróunarlönd að takast á við alvarlega landeyðingu með vistheimt og sjálfbærri landnýtingu. Þetta er meðal annars gert með námskeiðahaldi hér á Íslandi fyrir sérfræðinga frá þróunarlöndum, auk styttri námskeiða í þeirra heimalöndum. Skólinn hefur einnig þróað og hannað námsefni með það að markmiði að efla færni og kunnáttu í málefnum sem tengjast endurheimt landgæða.

Síðastliðinn vetur hleypti Landgræðsluskólinn af stokkunum nýju netnámskeiði (Massive Open Online Course) sem ber heitið „Business Model Innovation for Sustainable Landscape Restoration“. Í námskeiðinu læra þátttakendur hvernig hægt er að skapa atvinnu- og viðskiptatækifæri með því að vinna að landbótum og endurheimt vistkerfa. Námskeiðið leiðir þátttakendur frá hugmyndum og skilgreiningum á áskorunum, til hönnunar og framkvæmdar nýrra viðskiptamódela sem leiða til landbóta eða endurheimt vistkerfa. Haft er að leiðarljósi að aukin landgæði og heil vistkerfi stuðli að ávinningi fyrir samfélög og atvinnulíf, sem styður við velferð einstaklinga og samfélaga til framtíðar. Til að auka skilning á efninu og hagnýtingu þess eru þrjú raunveruleg verkefni rýnd og unnið með þau allt námskeiðið. Verkefnin þrjú eru endurheimt birkiskóga í kringum Heklu, breyttar ræktunaraðferðir á akurlöndum á Spáni, og áskoranir sem tengjast skógareldum og landnýtingu í Portúgal. Netnámskeiðið tekur átta vikur, er ókeypis og opið öllum á vef Coursera.org þar sem hægt er að skrá sig.

Netnámskeiðið var þróað með samstarfsaðilum í ENABLE verkefninu. Þetta er annað netnámskeiðið sem ENABLE hópurinn hefur þróað en það byggir á fyrra námskeiðinu sem gaf heildstæða þekkingu á landhnignun og landgræðslu, bæði út frá sjónarhóli náttúruvísinda og viðskipta- og atvinnulífs. Bæði netnámskeiðin eru sérstaklega sniðin að nemendum og sérfræðingum í náttúruvísindum, viðskiptum og stjórnun en nýtist öllum sem hafa áhuga á að stuðla að sjálfbærri þróun samfélaga og viðskipta- og atvinnulífs með ábyrgri landnýtingu.

Að ENABLE verkefninu standa, auk Landgræðsluskólans, Rotterdam School of Management, Erasmus University; Commonland; Spanish National Research Council; og Nova School of Business and Economics. Við þróun og gerð námskeiðsins átti Landgræðsluskólinn einnig mjög gott samstarf við sérfræðinga Landbúnaðarháskóla Íslands og Landgræðslunnar. ENABLE verkefnið er styrkt af Erasmus+ menntaáætlun Evrópusambandsins. Nánari upplýsingar um ENABLE verkefnið má finna á heimasíðu ENABLE hópsins.

Efnisorð:

Þú gætir haft áhuga á….

Jafnrétti er ákvörðun

Jafnrétti er ákvörðun

Landgræðslan tók á móti Jafnvægisvoginni, viðurkenningu FKA við hátíðlega athöfn fimmtudaginn 12. október

Máttur til mýranna!

Máttur til mýranna!

Afar mikilvæg alhiða votlendisráðstefna var haldin í Antwerpen 19. – 21. september síðast liðinn. Lögð var fram sameiginleg yfirlýsing um mikilvægi votlendis hvað varðar ýmsar þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir sem Landgræðslan hefur lagt stuðning við.