Tilgangur aðgerða
Að hækka grunnvatnsstöðu svæðisins þannig að vatn dreifist jafnt um svæðið og allt framræst land innan svæðisins verði blautt á ný.
Mjög mikilvægt að hafa tilgang aðgerða alltaf í huga.
Algengt er að halli lands og vatnsmagn sé vanmetið á framkvæmdasvæðum. Halla í landslagi er oft erfitt að greina með mannsauganu sérstaklega ef hann er lítill og vatnsmagn er mismikið eftir veðráttu.
Framkvæmdir liggi niðri á fuglvarptíma en sá tími miðast við lok apríl til 15. júlí
Nota skal beltagröfu á breiðum beltum við verkið, að hámarki 23 tonn að þyngd. Hún hefur góða vinnslubreidd og er ekki of þung í keyrslu á mýrarsvæðum.
Ýtur henta ekki vel. Þær ná ekki að þjappa mold nægilega ofan í skurðinn, erfitt er að raða efni t.d. tryggja að torfur lendi efst og hætta er á að rask á gróðri verði of mikið eftir að framkvæmd lýkur. Einnig getur verið varasamt að vera á ýtu ef mikil bleyta er á svæðinu þar sem ýta keyrir yfir skurðinn við uppfyllingarvinnu.
Aðferðir til hækkunar grunnvatnsstöðu
ÞAR SEM RUÐNINGAR ERU NÆGIR TIL UPPFYLLINGAR
Gott er að byrja á að taka gróðurtorfur upp úr botni og hliðum skurða og setja til hliðar, til að dreifa yfir rasksvæði eftir uppfyllingu skurðar.
Jarðvegi úr ruðningum er mokað ofan í og þjappað vel með reglulegu millibili til að ná góðri festu þannig að ekki myndist holrými í uppfyllingunni þar sem vatn getur runnið í gegn.
Gróðurtorfum er dreift yfir rasksvæðið, bæði yfir gamla skurðinn og þar sem ruðningarnir voru. Ekki þjappa eða jafna yfirborð, betra er að hafa það ójafnt og hæðótt. Þar sem skurðir eru opnir út í enda er mikilvægt að búa til stíflu til að koma í veg fyrir að vatn renni út frá nýfylltum skurði.
Ef ræsi eru til staðar undir yfirborði innan svæðið skal gæta að stífla þau vel.
Þverbönd
Þverbönd eru gerð úr torfum og lögð þvert á skurði með ákveðnu millibili til þess að dreifa vatni betur um svæðið, þannig að vatn nái ekki rennsli aftur í skurðum eða á öðrum óæskilegum stöðum.
Nauðsynlegt er að þverböndin séu um 30-40 cm hærri en skurðurinn og nái vel út fyrir hann.
Þetta þarf að spila með landslaginu með tilliti til halla og vatnsstöðu. Ef skurður er þvert á halla er gott að þverbönd séu lengri út fyrir skurð undan halla.
Því meiri halli því styttra bil á milli þverbanda.
Þar sem ruðningar eru ekki til staðar
Stíflur
Gott er að byrja á að taka gróður til hliðar úr botni skurðar og úr skurðarbökkum þar sem verður stíflað.
Nýta skal þá ruðninga sem eru til staðar í stíflugerð. Ef engir ruðningar eru á svæðinu er best að taka efni við hlið skurðar. Aðgrunnar tjarnir eru grafnar við hlið skurða eða út frá skurðinum sjálfum og gróðurtorfur nýttar í frágang.
Við uppbyggingu stíflu er mold mokað ofan í skurð og þjappað vel með reglulegu millibili. Stíflan er gerð breiðust neðst og mjókkar er ofar dregur, efsti hluti má þó ekki vera minni en 1,5 metrar á breidd. Gera skal þverband efst á stíflu.
Moldinni er þjappað með mjög reglulegu millibili þannig að ekki myndist holrými í uppfyllingunni þannig að vatn renni í gegn. Stíflur eiga að vera hærri en umhverfið og ná vel út fyrir skurð.
Í halla þarf stundum að hjálpa vatninu úr skurði, á milli stífla, að renna í rétta átt með því að gera grunna afrennslisrás undan halla sem beinir þannig vatnsrennsli inn á svæðið.
Fjarlægið trjágróður og ekki nota hann sem uppfyllingarefni, þar sem trjágreinar minnka festu moldar í skurði.
Öryggismál
Að stíflur og þverbönd haldi. Þegar tjarnir eru grafnar er gott að passa að þær séu aðgrunnar en ekki djúpar og reynist þannig hættulegar fólki og dýrum. Hægt er að fylla upp aðgrunn efnistökusvæði með gömlum rúllum til að minnka slysahættu enn fremur. Fara varlega með þung tæki á uppfylltum skurðum, sérstaklega í mikilli bleytu. Ganga ekki á nýuppfylltum skurðum þar sem efni ofan í þeim er ekki orðið stöðugt.
Oftast eru engir vegslóðar til staðar, þung vinnutæki keyra um viðkvæm og blaut svæði. Aka skal eftir vegslóðum, velja ökutæki við hæfi m.t.t. stærðar, þyngdar, stærðar á dekkjum og hversu viðkvæmt svæðið er, til að lágmarka rask. Gott er að skipuleggja framkvæmdir út frá veðurfari, vinna á viðkvæmum svæðum þegar frost er í jörðu, draga úr raski eins og unnt er og lagfæra svæðið eftir á ef þess þarf.
Fyrir frekari leiðbeiningar er hægt að hafa samband við Landgræðsluna í síma 488-3000 eða á netfangið votlendi@land.is