Áhugavert og ókeypis námskeið um vistheimt á vegum Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna
Vilt þú fræðast um hvernig má koma í veg fyrir, stöðva og snúa við hnignun vistkerfa?
Í byrjun september hefst frítt námskeið um vistheimt á vegum þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni. Námskeiðið er haldið á netinu og getur því hver og einn farið yfir efnið á sínum hraða. Námskeiðinu er skipt í fimm hluta sem áætlað er að taki um 3-5 klukkustundir hver.
Á námskeiðinu öðlast þáttakendur skilning á hugtakinu „vistheimt“ og mikilvægi hennar. Jafnframt fá þeir þekkingu á mismunandi tegundum vistkerfa og virkni þeirra, meginreglum vistheimtar og aðferðafræði. Þeir öðlast einnig skilning á nauðsyn víðtæks samstarfs sem flestra hópa til að ná árangri í vistheimt. Lögð er áhersla á að gera þáttakendum kleift að sjá vistheint í hinu stóra samhengi og að þeir fái skilning á nauðsynlegum skrefum í áætlanagerð til að árangur náist í vistheimt á heimaslóðum.
Námskeiðið hefst 3. september og fer fram á ensku.
Vistkerfi eru í senn viðkvæm og flókin. Hér hefur lúpína skotið rótum við Sandá í Þjórsárdal, Dímon í baksýn.
Starfsstöðvar
Starfsfólk
Um okkur
Rafrænir reikningar
Skýrslur
Leiðbeiningar
Landupplýsingar
Landbótasjóður
Gæðastýring í sauðsfjárrækt
Bændur græða landið
Varnir gegn landbroti
Endurheimt votlendis
Hagagæði
GróLind
Lagaumhverfi
Auglýsingar
Aðalskrifstofa | Gunnarsholti | 851 Hella | Sími 488-3000 | Netfang land@land.is | Rafrænir reikningar | Kt: 710169-3659