06.10.2020. Ráðstefnan FaithForNature
Alþjóðlega ráðstefnan FaithforNature fer fram þessa dagana. Hún hefur það markmið að sameina ólíkar trúarstofnanir, lífskoðunarfélög og trúarbrögð um heim allan til aðgerða að bregðast við loftslagshamförum og veita heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna framgang. Stofnun bandalags um trú í þágu jarðar innan vébanda Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. Faith for Earth Coalition) verður meðal umfjöllunarefna á ráðstefnunni. Á fimmta hundrað einstaklingar frá 58 löndum hafa skráð sig til þátttöku í ráðstefnunni. Á meðal þeirra eru shamanar frá Kanada og Grænlandi; biskupar af Norðurlöndunum og frá Norður- Ameríku, Bosníu Hersegóvínu, Filipseyjum, Vatíkaninu, Kenía; leiðtogar pygmía frá Austur-Kongó og frumbyggja í Amazon-skóginum; imam frá Nígeríu og íslamskir fræðimenn frá Katar; kennari frá sjálfbærnisþorpi í Indlandi og prófessorar úr Evrópu og frá Bandaríkjunum.
Landgræðslan
Starfsstöðvar
Starfsmenn
Um okkur
Rafrænir reikningar
Skýrslur
Leiðbeiningar
Landupplýsingar
Landbótasjóður
Gæðastýring í sauðsfjárrækt
Bændur græða landið
Varnir gegn landbroti
Endurheimt votlendis
Hagagæði
GróLind
Lagaumhverfi
Auglýsingar
Aðalskrifstofa | Gunnarsholti | 851 Hella | Sími 488-3000 | Netfang land@land.is | Rafrænir reikningar | Kt: 710169-3659