Landbótasjóður
Landbótasjóður er sjóður á vegum Landgræðslunnar sem leggur honum til fé til úthlutunar, auk þess sem aðrir aðilar geta lagt sjóðnum til fjármuni. Landgræðslan úthlutar árlega styrkjum úr sjóðnum, en tilgangur þeirra er að færa ábyrgð og framkvæmd landgræðsluverkefna heim í héruð og veita landeigendum, sveitarfélögum, félagasamtökum og öðrum umráðahöfum lands, styrki til landbótaverkefna. Upphæð styrks getur numið allt að 2/3 hluta kostnaðar við vinnu, tæki og kaup á aðföngum, en þó ekki meiru en sem nemur 10% þess fjár sem til úthlutunar er hverju sinni.
Við ákvörðun um styrkveitingar er lögð áhersla á:
- Stöðvun hraðfara jarðvegsrofs og gróðureyðingar.
- Endurheimt gróðurs, jarðvegs og votlendis.
- Sjálfbæra landnýtingu.
- Bindingu kolefnis í gróðri og jarðvegi.
Einstök verkefni geta hlotið styrk til allt að fimm ára, enda fylgi umsókn tímasett aðgerðaáætlun. Styrkþegi þarf að skila áfangaskýrslu og endurskoðaðri áætlun í lok hvers árs á styrktímabilinu.
Ársskýrsla 2022
Ársskýrsla 2021
Ársskýrsla 2020
Ársskýrsla 2019
Ársskýrsla 2018
Ársskýrsla 2017
Ársskýrsla 2016
Ársskýrsla 2015
Ársskýrsla 2014
Ársskýrsla 2013
Ársskýrsla 2012
Ársskýrsla 2011
Úthlutun 2023
Úthlutun 2022
Úthlutun 2021
Úthlutun 2020 a
Úthlutun 2020 b
Úthlutun 2019
Úthlutun 2018
Úthlutun 2017
Úthlutun 2016 a
Úthlutun 2016 b
Úthlutun 2015
Úthlutun 2015
Úthlutun 2014
Úthlutun 2013
Úthlutun 2012
Úthlutun 2011
Úthlutun 2010
Úthlutun 2009
Úthlutun 2008
Garðar Þorfinnsson
Framfylgir stefnu Landgræðslunnar í vernd og endurheimt vistkerfa. Hefur með höndum hópstjórn héraðssetra. Er verkefnisstjóri Landbótasjóðs Landgræðslunnar. Sér um áætlanagerð, umsjón og eftirlit með landgræðsluverkefnum á Suðurlandi ásamt öðrum héraðsfulltrúum á svæðinu. Skráir landgræðsluaðgerðir og mat á árangri.