Bændur græða landið
Verkefnið Bændur græða landið er samvinnuverkefni Landgræðslunnar og landeigenda um uppgræðslu heimalanda. Tilgangur þess er að styrkja landeigendur til landgræðslu á jörðum sínum, stöðva rof, þekja land gróðri og gera það nothæft á ný til landbúnaðar eða annarra nota. Verkefnið hófst árið 1990 og eru þátttakendur um 600.
Umsókn og skilyrði til þáttöku
Héraðsfulltrúar og annað starfsfólk héraðssetra Landgræðslunnar veita allar upplýsingar um BGL. Þeir sem óska eftir þátttöku geta sótt um með því að fylla út rafræna umsókn og senda á næsta héraðssetur. Ef spurningar kunna að vakna er hægt að hafa samband við næsta héraðsfulltrúa Landgræðslunnar.
Skilyrði fyrir þátttöku eru að það land sem um ræðir sé lítið gróið eða ógróið og beitarálag hóflegt. Starfsmenn Landgræðslunnar meta hvort landið fullnægir skilyrðum verkefnisins og leiðbeina með uppgræðsluaðferðir.
Fyrirkomulag verkefnisins
Landgræðslan hefur umsjón með verkefninu, veitir ráðgjöf, styrkir áburðarkaup landeigenda og lætur í té fræ þar sem þess er talin þörf að mati starfsmanna Landgræðslunnar. landeigendur sjá um að panta og flytja áburðinn og dreifa honum og endurgreiðir Landgræðslan hluta áburðarverðsins þegar dreifingu er lokið.
BGL ársskýrsla 2021
BGL ársskýrsla 2020
BGL ársskýrsla 2019
BGL ársskýrsla 2018
BGL ársskýrsla 2017
BGL ársskýrsla 2016
BGL ársskýrsla 2015
BGL ársskýrsla 2014
BGL ársskýrsla 2013
BGL ársskýrsla 2012
BGL ársskýrsla 2011
BGL ársskýrsla 2010
BGL ársskýrsla 2009
BGL ársskýrsla 2008
BGL fréttabréf 2016
BGL fréttabréf 2012
BGL fréttabréf 2011
BGL fréttabréf 2010
BGL fréttabréf 2009
BGL fréttabréf 2008
BGL fréttabréf 2007
BGL fréttabréf 2006
Anna Sigríður Valdimarsdóttir
Framfylgir stefnu Landgræðslunnar í landgræðslu og gróður- og jarðvegsvernd. Sér um áætlanagerð, umsjón og eftirlit með landgræðsluverkefnum. Aflar upplýsinga, vaktar ástandi gróðurs og jarðvegs og fylgist með að lögum um landgræðslu sé framfylgt. Skráir landgræðsluaðgerðir og mat á árangri.