Bændur græða landið
Verkefnið Bændur græða landið er samvinnuverkefni Landgræðslunnar og landeigenda um uppgræðslu heimalanda
Tilgangur þess er að styrkja landeigendur til landgræðslu á jörðum sínum, stöðva rof, þekja land gróðri og gera það nothæft á ný til landbúnaðar eða annarra nota. Verkefnið hófst árið 1990 og eru þátttakendur um 600.




Umsókn og skilyrði til þátttöku
Héraðsfulltrúar og annað starfsfólk héraðssetra Landgræðslunnar veita allar upplýsingar um BGL. Þeir sem óska eftir þátttöku geta sótt um með því að fylla út rafræna umsókn og senda á næsta héraðssetur. Ef spurningar kunna að vakna er hægt að hafa samband við næsta héraðsfulltrúa Landgræðslunnar.
Skilyrði fyrir þátttöku eru að það land sem um ræðir sé lítið gróið eða ógróið og beitarálag hóflegt. Starfsmenn Landgræðslunnar meta hvort landið fullnægir skilyrðum verkefnisins og leiðbeina með uppgræðsluaðferðir. Sjá nánar: Umsóknir
Fyrirkomulag verkefnisins
Landgræðslan hefur umsjón með verkefninu, veitir ráðgjöf, styrkir áburðarkaup landeigenda og lætur í té fræ þar sem þess er talin þörf að mati starfsmanna Landgræðslunnar. landeigendur sjá um að panta og flytja áburðinn og dreifa honum og endurgreiðir Landgræðslan hluta áburðarverðsins þegar dreifingu er lokið.



Ársskýrsla, fréttabréf og skjöl



Starfsstöðvar
Starfsfólk
Um okkur
Rafrænir reikningar
Skýrslur
Leiðbeiningar
Landupplýsingar
Landbótasjóður
Gæðastýring í sauðsfjárrækt
Bændur græða landið
Varnir gegn landbroti
Endurheimt votlendis
Hagagæði
GróLind
Lagaumhverfi
Auglýsingar
Aðalskrifstofa | Gunnarsholti | 851 Hella | Sími 488-3000 | Netfang land@land.is | Rafrænir reikningar | Kt: 710169-3659