Lúpínueyðing

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

 

Nokkrir starfsmenn Landgræðslunnar á Húsavík hafa að undanförnu eytt lúpínu  við Sandvatn í Mývatnssveit. Er það gert til þess að minnka líkur á að fræ komist út í vatnið og dreifi sér þaðan. Einnig hefur lúpínu verið eytt við Ásbyrgi til að koma í veg fyrir að hún flæði inn í Byrgið.

 

Á næstu dögum verður unnið við að eyða lúpínu á Steinsholti við Þórsmörk.

 

Ýmiss rannsóknaverkefni varðandi lúpínuna eru komin af stað eða í burðarliðnum.  Þau verða kynnt  síðar.  Í vor var lúpínu sáð á Sólheimasandi og Landeyjasandi og í haust verður sáð á Hólasandi.

 

Vaskir norðanmenn á lúpínuveiðum. Ljósmynd: Stefán Skaftason.