Nemendur Landgræðsluskólans komnir í Gunnarsholt

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Prentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Árið 2007 hófst þróunarverkefni milli Landbúnaðarháskóla Íslands, Landgræðslu ríkisins og Háskóla Sameinuðu þjóðanna um sérhæft nám í vistheimt og sjálfbærri landnýtingu fyrir sérfræðinga frá þróunarlöndum.

 

Í febrúar á þessu ári lauk þróunarverkefninu með stofnun Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna (UNU-LRT). Þetta er því í fyrsta sinn sem nemendahópur á vegum Landgræðsluskólans er formlega hluti af Háskóla Sameinuðu þjóðanna.

 

Nemendurnir komu til landsins um miðjan apríl til sex mánaða námsdvalar. Þetta eru sex háskólamenntaðir einstaklingar frá fimm löndum, Eþíópíu, Kirgistan, Mongólíu, Namibíu og Nígeríu.

 

Fram að þessu hafa þau sótt námskeið sem m.a. varða vistheimt, sjálfbæra landnýtingu og jarðvegsvernd, auk fyrirlestra um grasrótarstarf, verkefnastjórnun, alþjóðasamninga og fleira.

 

En nú er komið að því að þau vinni að sérverkefnum sínum undir handleiðslu leiðbeinenda. Nemendurnir hafa flutt sig um set og dvelja nú í höfuðstöðvum Landgræðslunnar í Gunnarsholti. Starfsfólk Landgræðslunnar býður nemendur Landgræðsluskólans velkomna.

 

landgraedsluskolinn_2010

Frá vinstri: Sodgerel Purev (frá Mongólíu), Alemayhu Muluneh (frá Eþíópíu), Burma Dasbal Borjigon (frá Mongólíu), Nazgul Esengulova (frá Kirgistan) og Hiskia Mbura (frá Namibíu). Moustapha Ibrahim (frá Níger) er fremstur.