Stofnun ársins 2010

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Hver eru viðbrögð þín? Skráðu þau neðan við fréttina.

Könnun var gerð meðal félagsmanna SFR á starfsskilyrðum þeirra og líðan á vinnustað fyrr á þessu ári.

 

Niðurstöður úr könnuninni um valið á Stofnun ársins 2010 voru kynntar í dag föstudaginn 7. maí, en þetta er í fimmta sinn sem SFR stendur að vali á Stofnun ársins.
Sigurvegarar voru Umferðarstofa í hópi stærri stofnana og Sýslumaðurinn á Hvolsvelli í hópi minni stofnana.

Könnunin var gerð meðal félagsmanna SFR, þátttakendur voru m.a. spurðir um:

  • trúverðugleika stjórnenda,
  • vinnuskilyrði, ímynd, sjálfstæði,
  • sveigjanleika,
  • ánægju með launakjör og fleira.

Öllum stofnunum ríkisins var gefinn kostur á að allir starfsmenn stofnunarinnar óháð því í hvaða stéttarfélögum þeir væru, gætu tekið þátt og nýttu margar þeirra það. Alls tóku tæplega 200 stofnanir þátt í ár og rúmlega 4000 starfsmenn.

Í hópi stærri stofnana var Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Austurlandi í öðru sæti og í því þriðja var Landgræðsla ríkisins.

 

 

Sveinn Runólfsson við afhendingu viðurkenningarinnar. Ljósm. Þorsteinn Guðjónsson.

 

Landgræðslan hefur á sl. árum verið í hópi þeirra stofnana er starfsfólk hefur metið hátt en það er mikils virði fyrir stofnunina að hljóta þessa viðurkenningu núna frá starfsfólki á erfiðleika tímum þegar orðið hefur að grípa til harkalegra aðhaldsaðgerða í rekstri sem óneitanlega hafa bitnað á kjörum starfsfólks.

Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu SFR.