Uppgræðsla á Hólasandi

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Við landnám var Hólasandur gróið landsvæði en á síðustu öldum hefur orðið þar mikil jarðvegseyðing þannig að nú er þar eyðimörk, 12.540 ha að stærð. Sandurinn takmarkast af Sandvatni að sunnan en gróðurlendi vestan Þeistareykja að norðan.

 

Landgræðslan hefur unnið að stöðvun jarðvegseyðingar á sandinum síðan 1960 en markviss uppgræðsla hófst 1994 að frumkvæði Húsgulls og með öflugum stuðningi Hagkaupa, síðar Umhverfissjóðs verslunarinnar og nú Pokasjóðs verslunarinnar.

 

Síðan þá hefur lúpínu verið sáð árlega í 210-440 ha. Grasfræi hefur verið sáð í rofabörð á jaðri sandsins og árlega hefur verið plantað um 20.000-120.000 skógarplöntum, aðallega birki og lerki. Skógræktarfélag Íslands leggur til allar skógarplönturnar en Landgræðslan sér um framkvæmdir.

 

Árið 2009 var lúpínu sáð í 66 ha, 54.000 birki- og lerkiplöntum var plantað auk þess sem áburði var dreift á gróðursetningar ársins og til styrkingar eldri gróðri. Einnig var viðhaldi girðinga sinnt svo hægt væri að halda svæðinu fjárlausu.

 

Sumarið 2009 var kalt framan af en síðan hlýtt. Sandurinn kom vel undan vetri en vorið var gróðrinum afar óhagstætt og spírun lúpínu varð ekki sérlega góð. Seinni hluti sumars var gróðrinum hinsvegar hagstæður.

 

Miklum skaða olli síðan lirfan Mófeti og át hún lúpínuna á stórum flákum, auk þess sem hún beit efri hluta af plöntum, aflaufgaði jafnvel heilar plöntur auk þess sem skálpar voru bitnir og fræ innan úr þeim étin. Þetta kom niður á fræframleiðslu ársins og var einnig talsverður lúpínudauði um allan sand.

 

Þó heldur landið á milli sáðráka áfram að gróa og engin ástæða til að leggja árar í bát hvað varðar uppgræðslu á Hólasandi enda er mikið verk óunnið. Á þessu ári er stefnt að því að sá lúpínu í 100 ha auk þess að gróðursetja lúpínustiklinga þar sem ófært er fyrir sáðvélar. Áfram verður haldið með plöntun lerkis, birkifræi verður safnað og því sáð í sandinn. Víðistiklingum verður síðan stungið niður til sjálfssáningar.

 

 

Lerki hefur víða verið plantað á Hólasandi. Ljósm. Stefán Skaftason.

Hér hafa aðgerðir borið góðan árangur. Ljósm. Stefán Skaftason.