Fæðuöryggi, orka og áburður
Miðvikudagur, 03. febrúar 2010 09:17
Framleiðsla á matvælum fyrir ört fjölgandi jarðarbúa krefst mikillar orku. Það gengur hins vegar hratt á olíulindir heimsins, notkun vex hraðar en nemur vinnslu á nýjum svæðum. Framtíð fæðuframleiðslunnar er því undir því komin hve vel mun ganga að laga þessa atvinnugrein að tækni sem byggir á öðrum orkugjöfum.
Sama gildir um áburð. Níturframleiðslan byggist að mestu á jarðgasi og landbúnaðurinn verður því æ háðari löndum sem eru rík af þessari auðlind. Fosfór er að mestu unnin úr bergi, en það gengur á þær námur sem auðveldast er að vinna.
Gríðarlegt tap og sóun næringarefna á sér stað í heiminum, en mikið svigrúm er til umbóta. Slíkt verður að vera forgangsverkefni til að tryggja að ekki komi til fæðukreppu í heiminum.
Í fjórðu grein sinni um um greiningu á spurningunni „Verður nóg að borða?“ fjallar Andrés Arnalds, fagmálastjóri Landgræðslunnar, um orku og áburð í tengslum við fæðuöryggi framtíðarinnar. Sjá nánar bls. 20 í Bændablaðinu 28. janúar 2010.









