Hvað er héraðsfulltrúi?

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Bjarni Maronsson. Ljósm. Jón Ragnar Björnsson.


Störf héraðsfulltrúa Landgræðslunnar eru mjög fjölbreytt. Þeir eru helstu tengiliðir Landgræðslunnar við bændur, landeigendur og sveitarfélög.

„Bændur græða landið“ (BGL) er meðal þeirra verkefna, sem þeir sinna. Beitareftirlit og leiðbeiningar um landnýtingu, gæðastýring í hrossa- og sauðfjárrækt, varnir gegn landbroti og margt fleira er meðal verksviða héraðsfulltrúa.

Til að fá nánari innsýn í þennan hluta af starfsemi Landgræðslunnar er fróðlegt að lesa starfsskýrslu Bjarna Maronssonar, héraðsfulltrúa Landgræðslunnar á Norðurlandi vestra.