Hefting öskufoks í nágrenni Eyjafjallajökuls
Föstudagur, 25. júní 2010 12:00
Gjóskufok í nágrenni Eyjafjallajökuls er mikið vandamál fyrir íbúa svæðisins. Í litlum vindi fýkur upp aska sem hefur veruleg neikvæð áhrif á lífsgæði íbúa og atvinnulíf svæðisins og nærliggjandi sveita. Verði ekkert að gert er viðbúið að þetta ástand geti varað næstu árin.
Flóðavarnir við Svaðbælisá
Miðvikudagur, 23. júní 2010 08:00
Nokkur eðjuhlaup hafa komið í Svaðbælisá í kjölfar stóra vatnsflóðsins sem varð við upphaf gossins í Eyjafjallajökli. Áin hefur borið mikinn aur og eðju frá jöklinum og skemmt varnargarða og ræktunarlönd á leið sinni til sjávar.
Flóðahætta undir Eyjafjallajökli
Þriðjudagur, 22. júní 2010 11:07
Fjölmörg vatnsföll, ár og lækir eiga upptök sín í Eyjafjallajökli og fjallgarðinum ofan byggðarinnar undir Eyjafjöllum. Á leiðinni niður brattar fjallshlíðarnar myndast mikill framburður sem sest til í farvegunum. Fyrir daga vega- og brúagerðar flæmdust árnar um undirlendið í nýjum og nýjum farvegum.
Fleiri greinar...
Síða 9 af 77







